Hið sívinsæla Scrabble, sem Íslendingar þekkja einnig sem Skrafl, er nú komið aftur í endurbættri útgáfu en það hefur verið ófáanlegt um árabil.
Eins og áður snýst spilið um að mynda orð með stafatöflum á leikborði þannig að þau gefi sem flest stig.
Stigakerfið hefur verið endurreiknað og stafatöflurnar eru úr viði en leikurinn er í grunninn sá sami.
Nú geta allir stafsetningarsjúklingar og aðrir orðheppnir tekið gleði sína og spilað nýtt og betra Scrabble!
Nánari lýsing:
- Fjöldi leikmanna: 2-4
 - Leiktími: 40 mín.
 - Aldur: 10+
 - Útgefandi: MATTEL, Nordic Games
 - Tungumál á leikreglum: Íslenska
 
Innihald:
- Leikborð
 - 104 Stafatöflur
 - 4 Stafastandar
 - Stafaskjóða
 - Leikreglur